Persónuverndarstefna

 

Persónuvernd er mikilvæg í starfsemi Meira máls og leggjum við ríka áherslu á að tryggja öryggi þeirra persónuupplýsinga sem við vinnum. Meðferð ýmissa persónuupplýsinga er nauðsynleg við greiningar, þjálfun og ráðgjöf. Við söfnum sjálf eða fáum afhentar persónuupplýsingar um skjólstæðinga okkar í upphafi þjónustu en fáum oft einnig upplýsingar frá þriðja aðila, svo sem þjónustumiðstöðvum sveitarfélaga, sálfræðistofum, Ráðgjafar- og greiningarstöð eða svipuðum stofnunum. Talmeinafræðingar eru ávallt bundnir trúnaði varðandi þær upplýsingar sem foreldrar, forráðamenn eða skjólstæðingar veita þeim. Óski aðrir eftir upplýsingum um mál skjólstæðings eru viðeigandi upplýsingar eingöngu veittar með skriflegu samþykki foreldra eða forráðamanna. Þeir sem óska eftir upplýsingum eru iðulega Ráðgjafar- og greiningarstöð, þjónustumiðstöðvar sveitarfélaga eða skólar og leikskólar. Þagnarskylda þessi nær þó ekki til atvika sem heilbrigðisstarfsmanni ber að tilkynna samkvæmt öðrum lagaákvæðum (sjá nánar í lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr.34 2012 althingi.is).

Þessi stefna getur breyst fyrirvaralaust eða með breytingum í lögum um heilbrigðisstarfsmenn, lögum um persónuvernd eða öðrum lögum sem ná til þjónustu talmeinafræðinga.

Netfang

meiramal@meiramal.is

Heimilisfang

Grensásvegur 1A, 108 Reykjavík