Gjaldskrá og forfallagjald
Hjá talmeinafræðingum sem starfa samkvæmt rammasamningi við Sjúkratryggingar Íslands fara greiðslur vegna þjónustunnar eftir gildandi gjaldskrá Sjúkratrygginga sem nálgast má á sjukra.is. Börn þurfa að vera með beiðni um talþjálfun frá lækni og samþykki Sjúkratrygginga fyrir greiðsluþátttöku, en þá greiða þau ekkert fyrir þjónustuna.
Foreldrar eða forráðamenn eru ábyrgir fyrir mætingu barna í bókaða tíma. Sjúkratryggingar Íslands greiða aðeins fyrir þá tíma sem mætt er í. Forföll þarf að tilkynna fyrir kl.15 daginn fyrir tímann. Ef forföll eru ekki tilkynnt tímanlega verða foreldrar rukkaðir um forfallagjald sem samsvarar 12.000 kr. fyrir 40 mínútna tíma en 18.000 kr. fyrir 60 mínútna tíma.
Ef mikið er um forföll eða þau endurtekið tilkynnt seint getur talmeinafræðingur litið svo á að ekki sé vilji til að nýta sér þjónustuna og öðrum boðinn tíminn.
Netfang
meiramal@meiramal.is
Heimilisfang
Grensásvegur 1A, 108 Reykjavík